hosted by tripod
Tell me when this page is updated
Steypa dagsins

Steypa dagsins

 

22.4.06

Svindlbloggari

Ég ákvað að fara að dæmi
Halls og set inn próf til að reyna að láta líta út fyrir að það sé eitthvað að gerast á þessari síðu ;-)
Kom nú reyndar ágætlega út úr þessu!

This Is My Life, Rated
Life: 8.3
Mind: 7.8
Body: 7.3
Spirit: 6.4
Friends/Family: 7.7
Love: 9.1
Finance: 8.8
Take the Rate My Life Quiz

19.4.06

Vídjókvöld dauðans

verður í Firðinum í kvöld,
þetta og þetta var sótt á pósthúsið (eða réttara sagt í Nóatún) áðan, og hugsum við okkur gott til glóðarinnar! Á meðan við glápum á þessa ágætu þætti geri ég ráð fyrir að við jöplum á páskaeggjum sem verður skolað niður með malti og appelsíni.
Þar sem mér tókst að snúa eitthvað fáránlega upp á bakið á mér á skírdag og uppskera tognað liðband í baki nærðist ég aðallega á Norgesici og Parkódíni um páskana, svo að ég á páskaeggið mitt ósnert uppi í skáp. Bjartur greyið hafði svo mikið að gera við að stjana við mig að hann komst heldur ekki í að borða sitt, svo hann getur borðað mér til samlætis.

6.4.06

 

 

 

[Powered by Blogger]