Ég verð auðvitað að hafa nokkrar myndir af drengnum líka á minni síðu :-) Annars erum við með myndaalbúm á netinu í bígerð, en við erum ekkert búin að kynna okkur hvar er best að vera geyma svoleiðis. Ef einhver er með myndaalbúm á sinni síðu og vill deila visku sinni er það mjög vel þegið, þá getum við sparað okkur mikla leit að góðu netplássi :-)
Sjá síðuna hans Bjarts :-D Skrifum svo meira síðar þegar við erum búin að vinna upp 3 sólarhringa vökuna! Í ljósi þess hversu við erum orðin ellihrum verður það líklega um það leyti sem hann fermist...