Á rangri hillu?Hef verið að velta því fyrir mér undanfarið hvort ég hefði kannski átt að verða endurskoðandi en ekki söngkona. Skattaskýrslan okkar Bjarts er ekki sú einfaldasta, alls konar verktakadót, ökutækjastyrkir og fleira skemmtilegt, og ég er búin að liggja yfir þessu í nokkra daga og hef svei mér þá bara svolítið gaman af. Það eina sem er svolítið frústrerandi er það að yfirleitt þegar ég er búin að koma mér inn í þann hlut sem ég er að pæla í í skýrslunni þá þarf sonurinn athygli og ég er svo búin að gleyma öllu saman þegar ég kem aftur að tölvunni. En ég er búin að finna lausn á þessu, geri skýrsluna bara á nóttunni, haha - hmmm, held að hann sé að vakna...
Jóhanna Ósk - kl. 00:07