Nýjustu fréttirÞá er allt að komast upp í rútínu hérna í Hafnarfirðinum. Já, eða svona... Drengurinn er náttúrulega eins og ljós, sefur bara vel á nóttunni og rumskar rétt á 3-4 tíma fresti til að fá sér smá sjúss. Hann vakir svo meira á daginn, sem er ekkert nema gott mál. Vonandi er þetta ávísun á það sem koma skal, en ekki það að hann sé bara að stríða okkur með að vera svona góður til að byrja með...
Hann er meira að segja búinn að fara aðeins út, við fórum með hann í 5 daga skoðun á mánudaginn, og barnið hafði þyngst um 150 gr., sem okkur skilst að sé mjög gott, þar sem börn léttast víst alltaf fyrstu dagana og þykir gott ef þau eru komin aftur í fæðingarþyngd í skoðuninni. Við vorum auðvitað ægilega montin af þessu, hvað annað!
Í gær fórum við Snúður (ætli hann mætti heita það?) svo á foreldramorgun í Áskirkju! Þannig er mál með vexti að ég er orðin annar af umsjónarmönnunum (konunum) með þessum morgnum í kirkjunni, og kunni nú ekki við annað en að mæta á fyrsta fundinn. Mæting var nú ekki sérlega góð, ein kona lét sjá sig, en einn er betri en enginn, og auk þess bjuggumst við nú ekki við miklu svona fyrst, þar sem það hefur ekki verið neitt svona starf í gangi þarna í 2 ár. Lillimann svaf bara í vagninum sínum (INNI!) á meðan mamma hans kjaftaði, var nú ágætt að komast aðeins út fyrir hússins dyr, og syninum virtist vera slétt sama hvar hann var, svo fremi sem hann fékk að drekka og sofa í friði.
Á morgun er honum svo boðið í mat í tilefni þrítugsafmælis móðursystur hans, foreldrarnir fá náðarsamlegast að fara með, líklega vegna þess að þau eru með bílpróf og geta því komið honum á staðinn - honum var reyndar líka boðið í partý í kvöld af sama tilefni, en foreldrarnir hafa samviskusamlega kynnt sér reglur um útivistartíma barna, og bönnuðu honum að fara. Eins gott að taka þessi uppeldismál föstum tökum frá byrjun ;-)
Jóhanna Ósk - kl. 11:39
6.9.05
Þá er komið að þvíVið erum búin að opna fyrir heimsóknir ef fólk vill kíkja á okkur, endilega hringja samt á undan til að panta tíma :-)
Jóhanna Ósk - kl. 16:03